VIN starfsemi

Aðalfundarskýrsla VIN 2011

Aðalfundur Vinafélags Íslands og Niðurlanda

Utrecht 16 október 2011

Fundur settur af formanni félagsins Önnu Ingadóttur(u.þ.b. 11 félagarviðstaddir ).

Almenn starfsemi:
Fundarhöld: Á þessu starfsári hefur verið haldinn einn fundur en annars á stjórnin samskipti símleiðis ogmeðtölvupósti.

Vefsíðan og Facebook: Vefsíðan er með sama sniði og hefur verið. Reynt er að setja skemmtilegt og fróðlegt efni á síðuna sem tengist Íslandi. Enn hefur ekki tekist að gera síðuna alveg tvítala.
Samkvæmt talningu virðist vera fastur kjarni sem skoðar síðuna u.þ.b. 80-150 manns les greinar sem á síðunni standa.
Ýmsar fyrirspurnir berast VIN t.d. var VARA í leit að Hollendingum búsettum á Islandivegna þáttagerðar um ferðalög í kreppulöndum, Fellowship of fairly odd places varðandi skipulagningu á krikketkeppni á Miklatúni í juli og þýðingar, hollensk ferðaskrifstofa með atvinnuauglýsingu, kórar varðandi framburð á íslensku o.s.fl.

Á félagatali VIN eru 150 meðlimir (þar af 70 Hollendingar) og 230 eru á (tölvu)póstlista. VIN er með hóp á Facebook með u.þ.b. 60 virka notendurog. Fb siðan Íslendingar í Hollandi er með 244 einstaklingar skráða. Áhugavert væri að skoða þennan hóp betur og sjá hvort fleiri vilji gerast meðlimir félagsins (athugasemd frá meðlimi er að margir í þessum hópi eru Íslendingar sem fluttir eru heim). Hugmynd – er að skoða hvort deila kunni greinum af vefsíðunni á Facebook.

Skemmtanahald á sídastliðnu starfsári.
Jólaball: Haldið var vel heppnað jólaball og ca. 80-100 manns mættu. Oceanfish styrkti skemmtunina. Jólaballið var haldið í mötuneyri Samskipa í Rotterdam (án leigugjalds) á hefðbundinn hátt með syngjandi jólasveinum, dans og miklu kökuborði. Egislöl gaf okkur appelsin. Það fór mikil vinna í undirbúning og á degi ballsins. Verið er ad skoða aðra sali fyrir þetta ár t.d. í Utrecht. Mikið af sölum í Utrecht eru fullbókadir, dýrir í leigu eða erfiðir að leigja á sunnudögum (kirkjusalir). Einn af möguleikunum er íslenskuskólinn. Skoðuð verður sú hugmynd að fá stúdenta (gegn greiðslu) til að hjálpa á jólaballinu.

Þorrablót: Þorrablótið var haldið í Amstelsalnum í Amsterdam. Icelandair styrkti blótið með flugmiðum og matarflutningi. 2 kokkar komu með fínan mat og brennivin. 2 skemmtikraftar komu lika frá Islandi. og íslenskt listafólk kom fram með söng. Um 90 manns mættu og skemmtu sér vel. Miðaverðið var 40 evrur fyrir meðlimi félagsins og 60 evrur fyrir aðra.
Salurinn hefur verið pantaður aftur fyrir næsta ár en einnig er verið að skoða möguleikann á öðrum sal. Núþegar hafa nokkrir Íslendingar boðið sig fram til ad hjálpa við söng, dans eða veislustjórnun.

Freyja: Kvennfélagið hefur hist 2-3 sídastliðið ár. Freyja hefur eigin stjórn og sjóð. Til stóð að hafa Freyjusiglingu með mökum í haust en vegna ónægrar þátttöku var hætt við.

17.júní: Haldið var upp á 17. júní í Schiedam í frekar blautu og köldu veðri. Um 50 manns kom og gerði sér glaðan dag með pylsum drykkjum, söng og leikjum. Síðastliðin ár hefur 17.júní hátíðin verið fjármögnuð af Samkip og Eimskip samkvaemt samningi sem rennur út 2011. Þær konur sem síðustu ár hafa séð um undirbúninginn finnst komin tími á að fá nýtt fólk inn og hefur Hrafnhildur Pétursdóttir boðið sig fram til 17.júní skipulags. Stjórnin mun hafa samband vid Samskip og Eimskip til að athuga möguleika á nýjum samningi.

Fjármál félagsins: Sjá skýrslu gjaldkera fyrir 2010. Fráfarandi gjaldkeri félagsins Snorri Björnson kynnti félögum fjárhagsskýrslu 2010. Heildartekjur voru 2045,30 evrur og heildarkostnadur 1175,88 evrur.Kostnaður fór í þorrablót. Heildarsjóður félagsins van í lok ársins 2010 var 5868,24 evrur.

Stjórnarkosning: Kosið var í stjórn fyrir starfsárið 2011-2012. Tveir stjórnarmeðlimir, Snorri Björnsson gjaldkeri og Sæunn Brynjólfsdóttir ritari, hafa ákveðið ad segja upp starfi sínu eftir margra ára vel unnin störf. 3 konur buðu sig fram á nýju starfsári. Helga Garðarsdóttir til gjaldkera, Elsa Helgadóttir til ritara og Hrafnhildur Pétursdóttir til meðstjórnanda og 17. júní hátíðarhalda. Framboð allra þriggja var samþykkt með lófaklappi viðstaddra.

Stjórn Vinafélags Íslands og Niðurlanda telur 6 meðlimi stjórnarárið 2011-2012:

Anna Ingadóttir (Formaður)
Helga Garðarsdóttir (Gjaldkeri)
Elsa Huld Helgadóttir (Ritari)
Sturla Spans (Meðstjórnandi)
Hrafnhildur Pétursdóttir (Meðstjórnandi og skipulagning 17.júní)
Þórunn Sigurðardóttir (Meðstjórnandi og skipulagning Þorrablóts)

Fundarslit.
Fundargerð: Elsa Huld Helgadóttir


 

Deel dit artikel:

Joomla Templates: from JoomlaShack